12 ágúst
2007
Ég
veit, ég er alveg ótrúlega löt að blogga. Er sko allaf á leiðinni
en finnst þetta að kveikja á tölvunni og finna mér tíma til að
setjast niður eitthvað svo erfitt. Tekur tíma frá öðru og sjaldnast
getur maður setið ótruflaður við skriftir...eins og þetta séu
merkileg skrif.
Núna
eru Dagur og Guðni úti að leika. Við erum bara búin að eiga fína
helgi. Fórum á fiskidaginn mikla á Dalvík á laugardaginn. Við vorum
mætt um kl 11 en þá byrjaði dagskráin og viti menn það var bara
allt stappfullt. Búið að loka stæðunum á neðra planinu og allar
götur annaðhvort fullar af bílum, tjöldum eða fólki. Fundum loks
stæði og skelltum okkur í þvöguna. Sáum Gunna kokk (sem eldar oní
mig daglega) dansa með Vefurunum en það er íslenski
þjóðdansaflokkurinn hans. Guðni er alveg fráhverfur því núna að
stunda þá íþrótt með mér. Síðan löbbuðum við um, komum ekki við hjá
FV það var um 50 metra röð enda eru þau best. Komumst samt í fisk
og þetta var mjög gott að vanda. Sáum ljótu hálfvitana spila, þeir
eru bara snillingar. Skelltum okkur svo á Sigló en þar var Sigrún
Lilja að spila á Pæjumóti. Ég ætlaði mér alltaf að skrifa meil á
leiksklólann þar og í sparisjóðinn og bjóða uppá skipti á íbúðum en
ég kom því ekki í verk, geri það næst.
Erum
bara búin að vera í leti í dag, heimilisverk efst á listanum, farið
út að leika, settar inn myndir á nýju myndasíðuna. Já Yahoo er að
loka myndasíðunni sinni og við erum búin að vera í veseni með að
ákveða hvar við eigum að vera. Völdum síðan íslenska síðu og sjáum
til hvort hún verði bara ekki fín.
Dagur er bara
hress, orðaforðinn verður meiri og meiri. Skilningurinn er alveg
ótrúlegur og síðan er hann farinn að hafa skoðanir öllum hlutum.
Skapið er oftast gott, hann fer stundum í fílu, snýr sér þá undan
og þykist ekki sjá mann. Þegar hann reiðist þá snögg reiðist hann
og það fer sko ekkert á milli mála. En hann er jafnfljótur að jafna
sig. Þegar hann hefur gert eitthvað af sér og það þarf að skamma
hann (eins og t.d. þegar hann slekkur á millistykkjum) þá veit hann
um leið að hann hefur gert eitthvað rangt, fer að skæla og vill
bara koma í fangið á manni....sætastur...
Snuddur eru
aðaláhugamálið sem og bílar, bækur og dýr. Við fengum sendar
snuddur um daginn og þegar drengurinn sá þær á stofuborðinu daginn
eftir þá var hann svo glaður, kom hlaupandi með þær allar í fanginu
og sagði brosandi og stolltur “mamma, dudda” hefði óskað þess að ég
hefði náð þessu á teip.
Eva
vinkona var að koma ásamt systur sinni og syni hennar. Þær voru að
ná í Dag og fara með hann í matarboð. Eva ætlar sem sagt að passa í
kvöld, við Guðni erum að fara út að borða á Halastjörninni þar sem
við eigum 2ja ára brúðkaupsafmæli á morgun.
Well
er að fara að taka mig til.....Over and
eating.....Indið